Um Tinnu

Tinna var stofnað 1981 og sérhæfir sig í sölu og þjónustu á hannyrðavörum og útgáfustarfsemi.

Tinna hefur gefið út fjöldann allan af prjónablöðum, s.s. Prjónablaðið Ýr og Ungabarnablöð ásamt prjónablaðinu TINNA sem öll hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin.

Hjá Tinnu er lögð áhersla á að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og uppfylla þjónustuþarfir viðskiptavina sinna hverju sinni.

Pantanir

Hægt er að senda pantanir í gegnum heimasíðu Tinnu ehf, www.tinna.is, á netfang tinna@tinna.is og eða í síma 565 4610. Pöntunarblöð eru í boði fyrir þá endursöluaðila sem óska eftir því. Allar pantanir eru teknar saman samdægurs og dreift innan höfuborgarsvæðisins daglega af starfsmönnum Tinnu, allar sendingar á landsbyggðina eru sendar daglega með Póstinum eða Landflutningum samkvæmt ósk viðskiptavina.

Þjónustuviðmið

Þjónustuviðmið Tinnu er að viðskiptavinir fá vörur afhentar daglega og allar pantanir sem berast fyrir kl.14.00 berist til viðskiptavina að morgni næsta dags.Með því tryggir Tinna að allir viðskiptavinir geti fengið vöruna afhenda innan 24 klst. hvert á land sem er og þannig tryggt betri þjónustu við viðskiptavini. Jafnframt leggur Tinna áherslu á að eiga allar vörur á lager til að tryggja hámarks afhendingaröryggi, í þeim tilvikum sem vörur eru ekki til þá mun Tinna halda utan um þær biðpantanir og senda viðskiptavinum um leið og þær berast frá erlendum birgjum.
Við viljum minna á ókeypis Prjónaklúbb Tinnu og Facebook síðu.
Starfsfólk Tinnu