Teppi og púðar
úr Alfa
Teppi
Stærð
U.þ.b. 125 x 175 sm.
Garn: Alfa (85% ull, 15% mohair)
Kremað nr. 1012: 9 dokkur. Grátt nr. 1042: 7 dokkur. Grátt nr. 1053: 7 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 9 dokkur.
Prjónar
Nr. 7. Heklunál nr. 7.
Prjónfesta
13 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 7 = 10 sm.
Prjónið ferninga eftir teikningu
Ferningur A (kremað nr. 1012): 10 stk. Ferningur B (grátt nr. 1042): 9 stk. Ferningur C (koksgrátt nr. 1088): 8 stk. Ferningur D (grátt nr. 1053): 8 stk.
Saumið saman ferningana eins og teikningin sýnir. Heklið 1 umf. fastapinna í kringum teppið. Heklið því næst einn stuðul í hvern fastapanna en heklið aðeins fleiri stuðla í hornin þannig að kanturinn liggi vel.
Púðar
Stærð
U.þ.b. 50 x 50 sm.
Garn í báða púðana
Kremað nr. 1012: 2 dokkur. Grátt nr. 1042: 8 dokkur. Grátt nr. 1053: 2 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 2 dokkur.
Einlitur púði með hjörtum
Fitjið upp 66 lykkjur með gráu nr. 1042 og prjónið ferning B tvisvar sinnum á hæð og breidd. Fellið af.
Prjónið annað stykki á sama hátt og saumið saman.
Fjórlitur púði
Prjónið tvö stykki af hverjum ferningi (A, B, C og D). Saumið saman eins og ljósmyndin sýnir.
Tengdar vörur
Peysa og húfa
úr Smart
Peysa
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 (10) 12 ára
Mál á peysu:
Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) 84 sm. Sídd: (40) 44 (48) 50 (52) 54 sm. Ermalengd: (25) 29 (32) 36 (39) 40 sm.
Garn: Smart (100% ull). Einnig má nota Sandnes alpakka eða Mandarin classic.
Grátt nr. 1032: (6) 7 (8) 9 (10) 11 dokkur.
Prjónar:
Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 4. Stuttur hringprjónn nr. 3,5.
Fylgihlutir:
Prjónanælur.
Prjónfesta:
20 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4 = 10 sm.
Bolur:
Fitjið upp (140) 148 (156) 168 (176) 184 lykkjur á hringprjón nr. 4 og prjónið stroff (2 sl., 2 br.) í hring (4) 4 (4) 5 (5) 5 sm. Prjónið slétt og takið úr á fyrstu umferðinni með jöfnu millibili = (128) 136 (144) 152 (160) 168 lykkjur á prjóninum. Setjið merki í hvora hlið með (64) 68 (72) 76 (80) 84 lykkjur á hvorum helmingi. Prjónið þar til bolurinn mælist (8) 9 (10) 12 (13) 13 sm. Setjið merki sitthvorum megin við (36) 36 (36) 48 (48) 48 lykkjur á miðju framstykki (= kaðlamunstur) og aukið þannig út:
Prjónið að fyrra merkinu: Prjónið *3 br., 2 sl., aukið út 1lykkju, 2 br. aukið út 1 lykkju, 2 sl., 3 br.*. En- durtakið frá * til * að hinu merkinu. Nú eru (42) 42 (42) 56 (56) 56 lykkjur á milli merkjanna. Prjónið munstur eftir teikningunni yfir (42) 42 (42) 56 (56) 56 lykkjur á miðju framstykki og slétt yfir aðrar lykkjur. Prjónið þar til bolurinn mælist (27) 30 (33) 34 (35) 36 sm. Skiptið bolnum í hliðum og prjónið hvort stykki fyrir sig.
Bakstykki:
= (64) 68 (72) 76 (80) 84 lykkjur. Prjónið þar til 1 sm. vantar upp á fulla sídd. Setjið (30) 32 (32) 34 (36) 36 lykkjur í miðjunni á prjónanælur og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af við hálsmálið 1 lykkju. Prjónið þar til bakstykkið hefur náð fullri sídd. Setjið þær (16) 17 (19) 20 (21) 23 lykkjur sem eftir eru á prjónanælu. Prjónið hina hliðina á sama hátt en gagnstætt.
Framstykki:
= (70) 74 (78) 84 (88) 92 lykkjur. Haldið áfram með munstur þar til bolurinn mælist (33) 37 (41) 42 (44)
46 sm. Takið úr yfir munstrinu frá réttunni þannig (fallegast er að taka úr í 9. umferð munstursins): Prjónið að fyrra merkinu, prjónið *3 br., 2 sl., 2 br. saman, 2 br. saman, 2 sl., 3 br.*. Endurtakið frá * til * að hinu merkinu. Prjónið út umferðina = (64) 68 (72) 76 (80) 84 lykkjur á prjóninum. Prjónið til baka eins og lykkjurnar liggja. Prjónið slétt þar til (4) 4 (4) 5 (5) 5 sm. vantar uppá fulla sídd. Setjið (12) 12 (14) 14 (16) 16 lykkjur í miðjunni á prjónanælur og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun prjóns við hálsmálið (4,3,2,1) 4,3,3,1 (4,3,2,1,) 4,3,3,1 (4,3,3,1) 4,3,3,1 lykkju = (16) 17 (19) 20 (21) 23 lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið hefur náð fullri sídd. Setjið lykkjurnar af öxlum á prjónanælur. Prjónið hina hliðina á sama hátt en gagnstætt.
Ermar:
Fitjið upp (44) 44 (48) 48 (52) 52 lykkjur á sokkaprjóna nr. 4 og prjónið stroff eins og á bol. Prjónið slétt eftir að strof nu lýkur þar til ermin mælist (7) 7 (7) 8 (8) 8 sm. Setjið merki í fyrstu lykkjuna á umferðinni = merkilykkja. Aukið út 1 lykkju sitt hvorum megin við merkilykkjuna þegar ermin mælist 3 sm. frá strof og síðan með (3) 3 (3) 3 (3) 21⁄2 sm. millibili þar til (54) 58 (62) 66 (70) 74 lykkjur eru á prjóninum. Prjónið þar til ermin hefur náð fullri lengd. Fellið af.
Frágangur:
Prjónið axlir saman. Saumið ermar í handveg.
Kragi:
Prjónið upp (88) 96 (96) 100 (108) 108 lykkjur í kringum hálsmálið (takið lykkjurnar af prjónanælunum með) á prjóna nr. 3,5. Prjónið stroff 2 sl., 2 br. í hring (10) 10 (12) 12 (14) 14 sm. Fellið laust af með sl. og br. lykkjum.
Húfa
Stærðir:
(2-4) 6-8 (10-12) ára.
Prjónar:
Hringprjónn nr. 3,5. Sokkaprjónar nr. 3,5.
Garn: Smart
Grátt nr. 1032: 2 dokkur allar stærðir.
Fitjið upp (100) 108 (116) lykkjur á hringprjón nr. 3,5 og prjónið (4) 4 (5) sm. stroff 2 sl., 2 br. Prjónið sl. þar til húfan mælist (8) 9 (10) sm. Prjónið munstur þannig: Setjið merki fyrir og eftir 12 lykkjur í miðju að framan. Næsta umf: Prjónið að fyrra merkinu, prjónið 3 br., 2 sl., aukið út 1 lykkju, 2 br., aukið út 1 lykkju, 2 sl., 3 br., prjónið sl. út umferðina. Prjónið munstur eftir teikningunni yfir lykkjunar 14 í miðjunni. Prjónið 10. umf. munstursins þannig: 2 br. saman 2 sinnum yfir brugðnu lyk- kjurnar 4 í miðjunni = (100) 108 (116) lykkjur á prjóninum. Prjónið sl. þar til húfan mælist (16) 17 (18) sm. Takið úr þan- nig: *2 sl., 2 sl. saman*. Endurtakið frá * til * út umferðina. Prjónið 2 umf. án úrtöku. Prjónið *1 sl., 2 sl. saman*. Endur- takið frá * til * út umferðina. Prjónið 2 umf. án úrtöku. Prjónið 2 sl. saman út umferðina. Prjónið 1 umf. án úrtöku. Slítið frá. Dragið bandið í gegnum lykkjurnar og herðið vel að.
Skokkur
úr Smart
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 (10) ára.
Mál á skokki:
Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm.
Sídd: (38) 42 (46) 50 (54) sm.
Ermalengd: (24) 27 (30) 33 (36) sm.
Garn: Smart.
Ljósgrænt nr. 9012: (5) 6 (7) 8 (9) dokkur. Grænt nr. 8764: 1 dokka allar stærðir.
Fylgihlutir:
1 tala. Prjónanælur. Hjálparprjónn.
Prjónar:
Sokkaprjónar og hringprjónn (60 sm) nr. 4.
Prjónfesta:
20 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4 = 10 sm.
Bolur:
Fitjið upp (138) 146 (156) 164 (174) lykkjur með ljósgrænu á hringprjón nr. 4 og prjónið garðaprjón í hring (1 umf. br., 1 umf. sl.) (5) 5 (5) 6 (6) sm.
Setjið merki í hvora hlið með (64) 68 (72) 76 (80) lykkjur á bakstykkinu og (74) 78 (84) 88 (94) lykkjur á framstykkinu. Setjið einnig merki sitt hvorum megin við (22) 24 (26) 28 (30) lykkjur á miðju framstykki. Prjónið slétt í hring en prjónið miðlykkjurnar (22) 24 (26) 28 (30) á framstykkinu áfram í garðaprjóni. Prjónið þar til bolurinn mælist (9) 9 (10) 10 (10) sm. Prjónið nú tveimur lykkjum færri í garðaprjóni á miðju framstykkinu = (20) 22 (24) 26 (28) lykkjur í garðaprjóni á miðju framstykki. Prjónið þar til bolurinn mælist (14) 14 (15) 15 (15) sm. Prjónið tveimur lykkjum færri í garðaprjóni á miðju framstykkinu. Fækkið garðaprjónslykkjunum um tvær með (4) 4 (5) 5 (5) sm. millibili þar til (10) 10 (12) 12 (14) garðaprjónslykkjur eru eftir. Athugið: Fellið af fyrir handvegi þegar bolurinn mælist (25) 28 (31) 35 (38) sm. þannig: Fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið (2 lykkjur sitt hvorum megin við hliðarmerkið) = (60) 64 (68) 72 (76) lykkjur á bakstykki og (70) 74 (80) 84 (90) lykkjur á framstykki. Prjónið hvort stykki fyrir sig.
Bakstykki:
Prjónið sl. á réttu, br. á röngu og fellið af í byrjun hvers prjóns við handveg (2,1,1,1) 2,1,1,1,1 (2,1,1,1,1) 2,1,1,1,1 (2,1,1,1,1,1) lykkju = (50) 52 (56) 60 (62) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til 2 sm. vantar uppá fulla sídd. Setjið (18) 20 (22) 22 (24) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í byrjun prjóns við hálsmálið = (15) 15 (16) 18 (18) lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið hefur náð fullri sídd. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina hliðina á sama hátt en gagnstætt.
Framstykki:
Prjónið og fellið af fyrir handvegi eins og á bakstykki og haldið jafnframt áfram að prjóna garðaprjón í miðju sem fyrr = (60) 62 (68) 72 (76) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til (6) 6 (7) 7 (8) sm. vantar uppá fulla sídd.
Gerið tvær fellingar í miðju að framan þannig: Prjónið þar til (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur eru eftir að garðaprjónslykkjunum, setjið (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur á hjálparprjón, leggið hjálparprjóninn með réttuna fram, fyrir framan fyrstu (5) 5 (6) 6 (7) garðaprjónslykkjunar, rennið hjálparprjónslykkjunum að hinum enda prjónsins og prjónið 1 lykkju af hvorum prjón saman (1. felling). Setjið síðustu (5) 5 (6) 6 (7) garðaprjónslykkjurnar á hjálparprjón, leggið prjóninn með réttuna fram, fyrir aftan næstu (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur, ha ð vinstrihandarprjóninn fyrir framan. Rennið hjálparprjónslykkjunum að hinum enda prjónsins og prjónið 1 lykkju af hvorum prjóni saman (2. felling). Prjónið út umferðina. Prjónið br. til baka yfir allar lykkjurnar. Prjónið 2 lykkjur í miðjunni br. saman = (49) 51 (55) 59 (61) lykkja á prjóninum.
Setjið (5) 7 (9) 9 (11) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af í byrjun prjóns við hálsmálið 3,2,1,1 lykkju = (15) 15 (16) 18 (18) lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið hefur náð fullri sídd. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina öxlina á sama hátt en gagnstætt.
Ermar:
Fitjið upp (40) 42 (44) 46 (48) lykkjur með grænu á sokkaprjóna nr. 4 og prjónið stroff í hring (1 umf. br., 1 umf. sl.) samtals (4) 4 (4) 5 (5) sm. Skiptið yfir í ljósgrænt og prjónið sl. Prjónið þar til ermin mælist (5) 5 (5) 6 (6) sm. Aukið út 1 lykkju sitt hvorum megin við 2 lykkjur undir miðri erminni. Endurtakið útaukninguna á 6. hverri umferð þar til (50) 54 (58) 62 (66) lykkjur eru á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (24) 27 (30) 33 (36) sm. Fellið af 8 lykkjur undir miðri erminni. Prjónið sl. á réttu, br. á röngu fram og til baka.
Fellið af í byrjun hvers prjóns í hvorri hlið (2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 2,2,1,1,1,1,1,1,2,3,3 (2,2,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4) 2,2,2,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4, (2,2,2,1,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4) lykkjur = (10) 10 (10) 10 (12) lykkjur eftir á prjóninum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið aðra ermi á sama hátt.
Frágangur:
Saumið eða lykkið axlir saman. Saumið ermar í handveg.
Hálslíning:
Prjónið upp í kringum hálsmálið (takið lykkjurnar af prjónanælunum með) með grænu á prjóna nr. 4. Prjónið 1 umf. br., 1 umf. sl. þar til 5 garðar hafa myndast (= 10 umf.) Fellið af með br. lykkjum. Festið stóra tölu efst á mitt framstykkið.
Lambhúshetta
Hneppt peysa með berustykki
úr Alpakka
Stærð:
(1-1 1⁄2) 2-3 (4) ára
Mál á peysu:
Yfirvídd: (55) 60 (65) sm
Sídd: (32) 36 (40) sm
Ermaleng mæld undir ermi fyrir miðju: (20) 24 (28) sm
Garn: Alpakka (100 % alpakkaull)
Ljósblár 6211: (3) 3 (4) dokkur
Ljósbrúnn 3031: 1 dokka allar stærðir
Hvítur 1012: 1 dokka allar stærðir
Grænn 9435: 1 dokka allar stærðir
Lillableikur 4634: 1 dokka allar stærðir
Afgangur af rauðu í útsaum
Prjónar/fylgihlutir:
Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 3 1⁄2 (5) 5 (6) tölur
Prjónfesta:
22 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 3 1⁄2 = 10 sm
» Fyrsta og síðasta lykkjan er kantlykkja og er alltaf prjónuð slétt.
Fram- og bakstykki:
Fitjið upp (132) 148 (160) lykkjur á prjóna nr. 3 með hvítu og prjónið 7 prjóna stroff fram og til baka, 1 slétt, 1 brugðin. Fyrsti prjónn er rangan.
Á seinasta prjóni (= röngunni) er lykkjum fækkað niður í (118) 130 (144) jafnt yfir umferð.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3 1⁄2 og prjónið áfram slétt prjón með bláu.
Prjónið slétt prjón þangað til peysan mælist (17) 20 (23) sm, skiptið niður fyrir handvegi svona (frá réttunni): Prjónið (25) 28 (31) lykkjur (= hægra framstykki), prjónið (7) 7 (8) lykkjur, setjið lykkjur á hjálparprjón, prjónið (54) 60 (66) lykkjur (= bakstykki), prjónið (7) 7 (8) lykkjur, setjið lykkjur á hjálpar- prjón, prjónið (25) 28 (31) lykkjur (= vinstra framstykki). Leggið peysuna til hliðar og prjónið ermar.
Ermar:
Fitjið upp (40) 44 (44) lykkjur á sokkaprjón nr. 3 með hvítum og prjónið 7 umferðir stroff 1 slétt, 1 brugðin. Í síðustu umferð er lykkjum fækkað niður í (36) 38 (40) jafnt yfir umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3 1⁄2 og prjónið áfram slétt prjón með ljósbláu. Um leið er aukið út um 1 lykkju sitthvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð í 6. hverri umferð, (7) 8 (9) skipti = (50) 54 (58) lykkjur. Prjónið áfram þangað til ermin mælist (20) 24 (28) sm.
Í næstu umferð eru (7) 7 (7) lykkjur undir miðri ermi settar á hjálparnælu = (43) 47 (51) lykkjur á prjóninum.
Leggið nú fyrri ermina til hliðar og prjónið aðra eins.
Laskúrtaka/berustykki:
Setjið ermarnar inn með bolnum á prjóna nr. 3 1⁄2 og látið affeldu lykkjur- nar standast á = (25) 28 (31) lykkjur (vinstar framstykki), (43) 47 (51) lykkjur (vinstri ermi), (54) 60 (66) lykkjur (bakstykki), (43) 47 (51) lykkjur (hægri ermi), (25) 28 (31) lykkjur (hægra framstykki), = (190) 210 (230) lykkjur. Setjið merki í öll samskeyti (þar sem bolur og ermi mætast), og prjónið fram og til baka slétt prjón með bláu, um leið er gerð laskúrtaka frá rétt- unni svona: Prjónið þangað til það eru 3 lykkjur að fyrsta merki, takið 1 lykkju óprjónaða yfir, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 slétt, 2 slétt saman. Endurtakið úrtökuna við hvert merki = 8 úrtökur.
Takið úr frá réttunni (1) 2 (3) skipti = (182) 194 (206) lykkjur.
Haldið áfram og prjónið munstur eftir munsturteikningu, fyrir innan 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar búið er prjóna eftir munsturteikningu eru (92) 98 (104) lykkjur á prjóninum.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3 og hvítan lit.
Prjónið 1 prjón slétt, þar sem lykkjum er fækkað niður í (82) 86 (90) jafnt yfir umferð.
Prjónið 7 prjóna stroff, 1 slétt, 1 brugðin. Fellið af.
Frágangur:
Saumið eða prjónið saman lykkjur undir ermi.
Kantur að framan:
Takið upp lykkjur meðfram vinstri framkanti (takið upp lykkju í hverri lykkju, nema hoppið alltaf yfir 4. hverju lykkju) frá réttunni, með prjónum nr. 3 og hvítum lit. Prjónið 7 prjóna stroff 1 slétt, 1 brugðin. (fyrsti og síðasti prjónninn er frá röngunni).
Fellið af.
Setjið merki fyrir alls (5) 5 (6) tölur, efsta og neðsta merki u.þ.b. 3 lykkjum frá kantinum, restin með jöfnu millibili.
Prjónið hægri framkantinn með hnappagötum þar sem merkin eru stað- sett, á 3. prjóni (rangan).
Hnappagöt:
Fellið af 2 lykkjur. Á næsta prjóni eru tjaðar upp 2 lykkjur yfir þær sem felldar voru.
Saumið fræhnúta með rauðu í miðjuna á hverju blómi í munstrinu. Festið tölurnar á.
Peysa
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 (10) áraMál á peysu:
Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm Sídd u.þ.b.: (37) 41 (45) 49 (52) smGarn: Smart
Blátt nr. 5936: (6) 6 (7) 8 (9) dokkur Sjá litaspjald á tinna.isPrjónar/heklunál/fylgihlutir:
Hringprjónn 60 sm nr. 3 og 4 Sokkaprjónar nr. 3 og 4 Heklunál nr. 3 Kaðlaprjónn 3 tölurPrjónfesta:
21 lykkja á prjóna nr. 4 = 10 smBolur
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (152) 160 (172) 180 (192) lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er tekið úr með jöfnu millibili þar til það eru (134) 142 (152) 160 (168) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón. Prjónið þar til bolurinn mælist (22) 25 (28) 31 (34) sm. Skiptið fyrir handveg með því að fella af 2 lykkjur í byrjun umf. og 2 lykkjur í miðju umf. = (65) 69 (74) 78 (82) lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Prjónið hvort stykki fyrir sig.Bakstykki
Fellið af fyrir handveg í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (2,1,1,1) 2,2,1,1 (3,2,1,1) 3,2,1,1,1 (3,2,2,1,1) lykkjur = (55) 57 (60) 62 (64) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til handvegurinn mælist (14) 15 (16) 17 (17) sm. Setjið (23) 25 (26) 28 (28) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun hvers prjóns frá handveginum (5,5,6) 5,5,6 (5,6,6) 5,6,6 (6,6,6) lykkjur. Prjónið hina hliðina eins.Framstykki
Prjónað eins og bakstykkið þar til handvegurinn mælist (4) 5 (51⁄2) 6 (6) sm. Setjið (5) 5 (6) 6 (6) lykkjur í miðjunni á prjónanælu fyrir klauf að framan og prjónið hvora hlið fyrir sig. Prjónið þar til framstykkið er (5) 5 (51⁄2) 6 (6) sm styttra en bakstykkið. Fellið af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið (3,2,2,1,1) 3,2,2,1,1,1 (3,2,2,1,1,1) 4,3,2,1,1 (4,3,2,1,1) lykkjur. Fellið af á öxl á sama stað og á bakstykkinu.Ermar
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (40) 44 (44) 48 (48) lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er aukið í með jöfnu millibili þar til það eru (44) 46 (48) 50 (52) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón og munstur eftir teikningunni y r lykkjurnar 26 í miðjunni á erminni. Jafnframt er aukið í 2 lykkjur í miðju undir ermi þegar ermin mælist (6) 6 (5) 6 (8) sm. Endurtakið útaukninguna með (2) 2 (21⁄2) 3 (3) sm millibili alls (8) 9 (9) 10 (10) sinnum = (60) 64 (66) 70 (72) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (23) 27 (31) 35 (39) sm. Fellið af 2 lykkjur í miðju undir ermi og prjónið ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermak- úpu í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (3,2,1,1,1,1,1,2,2,2) 3,2,1,1,1,1,1,1,2,2,3 (3,2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4 (3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4) lykkjur. Fellið af lykkjurnar (26) 26 (26) 26 (28) sem eftir eru í einu lagi. Prjónið aðra ermi eins.Frágangur
Saumið axlarsauminn. Takið upp á prjóna nr. 3 meðfram hálsmálinu (lykkjurnar á prjónanælunni meðtaldar, aukið í 1 lykkju á u.þ.b. 8. hverri lykkju y r lykkjurnar á prjónanælunni) alls u.þ.b. (88) 92 (96) 100 (100) lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, á réttunni á að vera 1 kantlykkja og 2 sléttar í báðum hliðum (að framan). Prjónið þar til strof ð mælist (12) 12 (13) 13 (14) sm. Fellið af.Listar í klauf að framan
Prjónið á prjóna nr. 3 lykkjurnar á prjónanælunni í klau nni í miðju að framan. Fitjið upp 1 nýja lykkju við fremra stykkið (vinstra megin) og á stærðum 2ja og 4ra ára er aukið í 1 lykkju í miðjunni = 7 lykkjur. Prjónið stroff (1 slétt, 1 brugðin). Frá réttunni á að vera 1 slétt í báðum hliðum. Takið 1. lykkju við opið óprjónaða svo kanturinn verði fallegur. Prjónið þar til listinn nær (aðeins strekkt) að miðj- unni á kraganum. Fellið af. Takið upp lykkjur neðst í klau nni fyrir aftan listann og prjónið annan lista eins sem nær (aðeins strekkt) að miðjunni á kraganum. Fellið af. Saumið listana við framstykkin. Brjótið kragann tvöfalt inn á rönguna og saumið niður. Heklið 3 hneslur með tvöföldu garni og saumið á vinstri hliðina á klau nni. Saumið tölur í á móti. Saumið ermarnar í.
Smekkur
úr Mandarin Petit
Garn: Mandarin Petit
Bleikt nr. 4502: 1-2 dokkur
Heklunál/fylgihlutir:
Heklunál nr. 3
1 tala
Skammstafanir:
ll.= loftlykkjur
fp. = fastapinnar
st. = stuðlar
Athugið: Heklið fastapinna alltaf í aftari lykkjuhelminginn
Heklið 26 ll. með heklunál nr. 3.
1. umf.: Stingið heklunálinni í aðra ll. frá nálinni og heklið 12 fp., heklið 2 fp. í næstu lykkju, heklið 12 fp.
2. umf.: Stingið nálinni í aðra lykkjuna og heklið 12 fp., 2 fp. í næstu lykkju, 12 fp.
Endurtakið 2. umf. þar til heklaðar hafa verið 14. umf. Klippið frá.
Kantur utan með smekknum: Heklið 27 ll. (band), heklið fp. utan með smekknum. Athugið, í hornin og miðjuna eru heklaðir 2 fp., heklið 27 ll. (band).
Heklið 4 umf. í viðbót með fp., alltaf í aftari lykkjuhelminginn. Munið eftir hornunum og miðjunni. Heklið nú eina umf. af st. þannig: 3 ll. (= fyrsti st.), * 1 ll., hoppið yfir eina lykkju, 1 st. í næstu lykkju*. Endurtakið frá * til *. Athugið í hornin og miðjuna eru heklaðir 2 st. með 2 ll. á milli.
Heklið að lokum takka utan með þannig: * 3 ll., 1 fp. í fyrstu ll. af þessum þremur, 1 fp. utan um ll. á milli st.*. Endurtakið þar til kemur að endanum á öðru bandinu, heklið þá fp. fyrir endann, gerið hneslu með 6 ll. í horninu, heklið fp. meðfram hálsmálinu og fyrir hinn endann. Klippið frá. Festið tölu á.
1 teikning
12 prjónar - endurtakið
46 lykkjur - prjónað 1 sinni
Byrjið hér
= Slétt á réttu, brugðið á röngu
= Brugðið á réttu, slétt á röngu
= 2 sléttar saman
= 1 lykkja tekin óprjónuð, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
= Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkjurnar af kaðlaprjóninum slétt, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón fyrir framan, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið lykkjuna af kaðlaprjóninum slétt
= Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón fyrir aftan, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkjurnar af kaðlaprjóninum slétt, setjið 1 lykkju á kaðlaprjón fyrir framan, prjónið 2 sléttar, prjónið lykkjuna af kaðlaprjóninum slétt
= Sláið upp á