Uglupeysa og húfa
Ný heimasíða er um það bil að líta dagsins ljós og því er vöruúrval ekki uppfært eins oft á þessari síðu.
Tengdar vörur
SONJA kaðlapeysa úr De dødes tjern
Hneppt peysa með berustykki
úr Alpakka
Stærð:
(1-1 1⁄2) 2-3 (4) ára
Mál á peysu:
Yfirvídd: (55) 60 (65) sm
Sídd: (32) 36 (40) sm
Ermaleng mæld undir ermi fyrir miðju: (20) 24 (28) sm
Garn: Alpakka (100 % alpakkaull)
Ljósblár 6211: (3) 3 (4) dokkur
Ljósbrúnn 3031: 1 dokka allar stærðir
Hvítur 1012: 1 dokka allar stærðir
Grænn 9435: 1 dokka allar stærðir
Lillableikur 4634: 1 dokka allar stærðir
Afgangur af rauðu í útsaum
Prjónar/fylgihlutir:
Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 3 og 3 1⁄2 (5) 5 (6) tölur
Prjónfesta:
22 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 3 1⁄2 = 10 sm
» Fyrsta og síðasta lykkjan er kantlykkja og er alltaf prjónuð slétt.
Fram- og bakstykki:
Fitjið upp (132) 148 (160) lykkjur á prjóna nr. 3 með hvítu og prjónið 7 prjóna stroff fram og til baka, 1 slétt, 1 brugðin. Fyrsti prjónn er rangan.
Á seinasta prjóni (= röngunni) er lykkjum fækkað niður í (118) 130 (144) jafnt yfir umferð.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3 1⁄2 og prjónið áfram slétt prjón með bláu.
Prjónið slétt prjón þangað til peysan mælist (17) 20 (23) sm, skiptið niður fyrir handvegi svona (frá réttunni): Prjónið (25) 28 (31) lykkjur (= hægra framstykki), prjónið (7) 7 (8) lykkjur, setjið lykkjur á hjálparprjón, prjónið (54) 60 (66) lykkjur (= bakstykki), prjónið (7) 7 (8) lykkjur, setjið lykkjur á hjálpar- prjón, prjónið (25) 28 (31) lykkjur (= vinstra framstykki). Leggið peysuna til hliðar og prjónið ermar.
Ermar:
Fitjið upp (40) 44 (44) lykkjur á sokkaprjón nr. 3 með hvítum og prjónið 7 umferðir stroff 1 slétt, 1 brugðin. Í síðustu umferð er lykkjum fækkað niður í (36) 38 (40) jafnt yfir umferð.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 3 1⁄2 og prjónið áfram slétt prjón með ljósbláu. Um leið er aukið út um 1 lykkju sitthvoru megin við fyrstu lykkjuna í umferð í 6. hverri umferð, (7) 8 (9) skipti = (50) 54 (58) lykkjur. Prjónið áfram þangað til ermin mælist (20) 24 (28) sm.
Í næstu umferð eru (7) 7 (7) lykkjur undir miðri ermi settar á hjálparnælu = (43) 47 (51) lykkjur á prjóninum.
Leggið nú fyrri ermina til hliðar og prjónið aðra eins.
Laskúrtaka/berustykki:
Setjið ermarnar inn með bolnum á prjóna nr. 3 1⁄2 og látið affeldu lykkjur- nar standast á = (25) 28 (31) lykkjur (vinstar framstykki), (43) 47 (51) lykkjur (vinstri ermi), (54) 60 (66) lykkjur (bakstykki), (43) 47 (51) lykkjur (hægri ermi), (25) 28 (31) lykkjur (hægra framstykki), = (190) 210 (230) lykkjur. Setjið merki í öll samskeyti (þar sem bolur og ermi mætast), og prjónið fram og til baka slétt prjón með bláu, um leið er gerð laskúrtaka frá rétt- unni svona: Prjónið þangað til það eru 3 lykkjur að fyrsta merki, takið 1 lykkju óprjónaða yfir, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 slétt, 2 slétt saman. Endurtakið úrtökuna við hvert merki = 8 úrtökur.
Takið úr frá réttunni (1) 2 (3) skipti = (182) 194 (206) lykkjur.
Haldið áfram og prjónið munstur eftir munsturteikningu, fyrir innan 1 kantlykkju í hvorri hlið.
Þegar búið er prjóna eftir munsturteikningu eru (92) 98 (104) lykkjur á prjóninum.
Skiptið yfir á prjóna nr. 3 og hvítan lit.
Prjónið 1 prjón slétt, þar sem lykkjum er fækkað niður í (82) 86 (90) jafnt yfir umferð.
Prjónið 7 prjóna stroff, 1 slétt, 1 brugðin. Fellið af.
Frágangur:
Saumið eða prjónið saman lykkjur undir ermi.
Kantur að framan:
Takið upp lykkjur meðfram vinstri framkanti (takið upp lykkju í hverri lykkju, nema hoppið alltaf yfir 4. hverju lykkju) frá réttunni, með prjónum nr. 3 og hvítum lit. Prjónið 7 prjóna stroff 1 slétt, 1 brugðin. (fyrsti og síðasti prjónninn er frá röngunni).
Fellið af.
Setjið merki fyrir alls (5) 5 (6) tölur, efsta og neðsta merki u.þ.b. 3 lykkjum frá kantinum, restin með jöfnu millibili.
Prjónið hægri framkantinn með hnappagötum þar sem merkin eru stað- sett, á 3. prjóni (rangan).
Hnappagöt:
Fellið af 2 lykkjur. Á næsta prjóni eru tjaðar upp 2 lykkjur yfir þær sem felldar voru.
Saumið fræhnúta með rauðu í miðjuna á hverju blómi í munstrinu. Festið tölurnar á.
Þjóðleg norsk barnapeysa
Einföld og falleg silk mohair peysa
Nancy Hneppt peysa með rósamunstri
Teppi og púðar
Teppi
Stærð
U.þ.b. 125 x 175 sm.Garn: Alfa (85% ull, 15% mohair)
Kremað nr. 1012: 9 dokkur. Grátt nr. 1042: 7 dokkur. Grátt nr. 1053: 7 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 9 dokkur.Prjónar
Nr. 7. Heklunál nr. 7.Prjónfesta
13 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 7 = 10 sm.Prjónið ferninga eftir teikningu
Ferningur A (kremað nr. 1012): 10 stk. Ferningur B (grátt nr. 1042): 9 stk. Ferningur C (koksgrátt nr. 1088): 8 stk. Ferningur D (grátt nr. 1053): 8 stk. Saumið saman ferningana eins og teikningin sýnir. Heklið 1 umf. fastapinna í kringum teppið. Heklið því næst einn stuðul í hvern fastapanna en heklið aðeins fleiri stuðla í hornin þannig að kanturinn liggi vel.Púðar
Stærð
U.þ.b. 50 x 50 sm.Garn í báða púðana
Kremað nr. 1012: 2 dokkur. Grátt nr. 1042: 8 dokkur. Grátt nr. 1053: 2 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 2 dokkur.Einlitur púði með hjörtum
Fitjið upp 66 lykkjur með gráu nr. 1042 og prjónið ferning B tvisvar sinnum á hæð og breidd. Fellið af. Prjónið annað stykki á sama hátt og saumið saman.Fjórlitur púði
Prjónið tvö stykki af hverjum ferningi (A, B, C og D). Saumið saman eins og ljósmyndin sýnir.
Peysa
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 (10) áraMál á peysu:
Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm Sídd u.þ.b.: (37) 41 (45) 49 (52) smGarn: Smart
Blátt nr. 5936: (6) 6 (7) 8 (9) dokkur Sjá litaspjald á tinna.isPrjónar/heklunál/fylgihlutir:
Hringprjónn 60 sm nr. 3 og 4 Sokkaprjónar nr. 3 og 4 Heklunál nr. 3 Kaðlaprjónn 3 tölurPrjónfesta:
21 lykkja á prjóna nr. 4 = 10 smBolur
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (152) 160 (172) 180 (192) lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er tekið úr með jöfnu millibili þar til það eru (134) 142 (152) 160 (168) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón. Prjónið þar til bolurinn mælist (22) 25 (28) 31 (34) sm. Skiptið fyrir handveg með því að fella af 2 lykkjur í byrjun umf. og 2 lykkjur í miðju umf. = (65) 69 (74) 78 (82) lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Prjónið hvort stykki fyrir sig.Bakstykki
Fellið af fyrir handveg í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (2,1,1,1) 2,2,1,1 (3,2,1,1) 3,2,1,1,1 (3,2,2,1,1) lykkjur = (55) 57 (60) 62 (64) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til handvegurinn mælist (14) 15 (16) 17 (17) sm. Setjið (23) 25 (26) 28 (28) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun hvers prjóns frá handveginum (5,5,6) 5,5,6 (5,6,6) 5,6,6 (6,6,6) lykkjur. Prjónið hina hliðina eins.Framstykki
Prjónað eins og bakstykkið þar til handvegurinn mælist (4) 5 (51⁄2) 6 (6) sm. Setjið (5) 5 (6) 6 (6) lykkjur í miðjunni á prjónanælu fyrir klauf að framan og prjónið hvora hlið fyrir sig. Prjónið þar til framstykkið er (5) 5 (51⁄2) 6 (6) sm styttra en bakstykkið. Fellið af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið (3,2,2,1,1) 3,2,2,1,1,1 (3,2,2,1,1,1) 4,3,2,1,1 (4,3,2,1,1) lykkjur. Fellið af á öxl á sama stað og á bakstykkinu.Ermar
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (40) 44 (44) 48 (48) lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er aukið í með jöfnu millibili þar til það eru (44) 46 (48) 50 (52) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón og munstur eftir teikningunni y r lykkjurnar 26 í miðjunni á erminni. Jafnframt er aukið í 2 lykkjur í miðju undir ermi þegar ermin mælist (6) 6 (5) 6 (8) sm. Endurtakið útaukninguna með (2) 2 (21⁄2) 3 (3) sm millibili alls (8) 9 (9) 10 (10) sinnum = (60) 64 (66) 70 (72) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (23) 27 (31) 35 (39) sm. Fellið af 2 lykkjur í miðju undir ermi og prjónið ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermak- úpu í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (3,2,1,1,1,1,1,2,2,2) 3,2,1,1,1,1,1,1,2,2,3 (3,2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4 (3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4) lykkjur. Fellið af lykkjurnar (26) 26 (26) 26 (28) sem eftir eru í einu lagi. Prjónið aðra ermi eins.Frágangur
Saumið axlarsauminn. Takið upp á prjóna nr. 3 meðfram hálsmálinu (lykkjurnar á prjónanælunni meðtaldar, aukið í 1 lykkju á u.þ.b. 8. hverri lykkju y r lykkjurnar á prjónanælunni) alls u.þ.b. (88) 92 (96) 100 (100) lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, á réttunni á að vera 1 kantlykkja og 2 sléttar í báðum hliðum (að framan). Prjónið þar til strof ð mælist (12) 12 (13) 13 (14) sm. Fellið af.Listar í klauf að framan
Prjónið á prjóna nr. 3 lykkjurnar á prjónanælunni í klau nni í miðju að framan. Fitjið upp 1 nýja lykkju við fremra stykkið (vinstra megin) og á stærðum 2ja og 4ra ára er aukið í 1 lykkju í miðjunni = 7 lykkjur. Prjónið stroff (1 slétt, 1 brugðin). Frá réttunni á að vera 1 slétt í báðum hliðum. Takið 1. lykkju við opið óprjónaða svo kanturinn verði fallegur. Prjónið þar til listinn nær (aðeins strekkt) að miðj- unni á kraganum. Fellið af. Takið upp lykkjur neðst í klau nni fyrir aftan listann og prjónið annan lista eins sem nær (aðeins strekkt) að miðjunni á kraganum. Fellið af. Saumið listana við framstykkin. Brjótið kragann tvöfalt inn á rönguna og saumið niður. Heklið 3 hneslur með tvöföldu garni og saumið á vinstri hliðina á klau nni. Saumið tölur í á móti. Saumið ermarnar í.