Tinna Tinna
  • Heim
  • Fyrirtækið
    • Um Tinnu
    • Endursöluaðilar
    • Tilkynningar
    • Prjónaklúbburinn
    • Hafa samband
    • Leiðbeiningar – Þæfing
  • Vörur
    • Garn
    • Prjónar og fylgihlutir
      • Prym
      • Sandnes
      • Knitpro
        • Fylgihlutir
    • Stakar uppskriftir til sölu
    • Gjafabréf
  • Prjónablöð
  • Ókeypis uppskriftir
  • Tilboð
Facebook Email
Innskrá / Nýskrá
0 items / kr. 0
Menu
Tinna Tinna
0 items / kr. 0
Stækka mynd
HeimVörurÓkeypis uppskriftir Nancy Hneppt peysa með rósamunstri
Previous product
Herrapeysa kr. 990 kr. 500
Back to products
Next product
Duo kr. 1.071

Nancy Hneppt peysa með rósamunstri

Stærðir:
(XS) S (M) L (XL) XXL

Mál á peysu:
Yfirvídd: (85) 91 (97) 106 (112) 119 sm.
Sídd: (56) 57 (58) 60 (61) 62 sm.
Ermalengd: 47 sm. allar stærðir, eða önnur valin lengd

Garn: Mini Alpakka eða Sisu Mini Alpakka:
Brúnyrjóttur 2652: (6) 7 (7) 8 (9)9 dokkur
Kremaður 1012: (1) 1 (2) 2 (3) 3 dokkur
Dökkbrúnn 4071: (1) 1 (1) 2 (2) 2 dokkur
Ljósgrábrúnn 2650: (1) 1 (1) 2 (2) 2 dokkur

Prjónar / fylgihlutir:
Sokkaprj. og hringprj. nr. 2½ og 3
Merkihringir
Prjónanæla
(8) 8 (9) 9 (10) 10 tölur

Prjónfesta:
27 L. slétt prjón á prjóna nr. 3 = 10 sm.

  • Smelltu hér til að hala allri uppskriftinni niður.
Print Friendly, PDF & EmailPrenta síðu
Frí heimsendingaþjónusta ef verslað er fyrir kr.10.000 eða meira.
Vörunr. 16d518d74451 Vöruflokkur: Ókeypis uppskriftir
Deila með
Facebook Twitter Email Pinterest linkedin
  • Fyrirspurn um vöru
Fyrirspurn um vöru

Fyrirspurn um vöru

Tengdar vörur

Loka

Leiðbeiningar á þæfingu

Fritidsgarn Tove Peer Gynt henta vel til þæfingar

Þvoið það sem á að þæfa í þvottavél við 40 - 60° á hraðkerfi með venjulegu þvottaefni. Yfirleitt er reiknað með því að flíkurnar hlaupi um u.þ.b. 20 % við þæfingu við 40° . Það er erfitt að gefa upp nákvæma stærð á flíkum eftir þæfingu því þvottavélar eru mismunandi og þæfingin getur því orðið mismikil. Við mælum með því að byrja á 40° í upphafi og þvo flíkina frekar aftur ef hún á að hlaupa meira og þá e.t.v. á hærra hitastigi.
Þæfingin verður meiri ef fleiri stykki eru höfð með í þvottavélinni. Ef þæfa á lítið stykki er gott að þvo eitthvað með, t.d. gallabuxur. Gott er að gera prufu fyrst og þæfa hana við lágt hitastig sérstaklega ef prjóna á peysu.
Vegna þess hve þvottavélar og þvottakerfi eru mismunandi getur Tinna ekki borið ábyrgð á útkomu þegar búið er að þæfa. Eftir að stykkið hefur verið þvegið er mikilvægt að taka það strax úr þvottavélinni, strekkja það, móta  og  leggja til   þerris.  Ef ykkur sýnist það vera of stórt má þvo það aftur e.t.v. á hærra hitastigi. Ef stykkið aftur á móti er of lítið má strekkja það og teygja og móta í rétta stærð á meðan það er ennþá rakt. Hægt er að þvo stykkið með smávegis af hárnæringu, það gerir stykkið teygjanlegra. Því lausara sem garnið er í sér og því lausara sem er prjónað er því meiri verður þæfingin. Garðaprjón þófnar meira en slétt prjón. Ull sem á að þæfa má ekki vera búið að meðhöndla þannig að það megi þvo hana í þvottavél. Ekki er mælt með að þæfa bleikta ull.
Þvoið síðan í höndum eða á ullarprógrammi.

Lesa meira
Loka

Peysa með laskúrtöku

úr Smart

Stærðir:

(2) 4 (6) 8 (10) 12 ára

Mál á peysu:

Yfirvídd: (68) 73 (78) 83 (88) 93 sm

Sídd: (38) 42 (46) 50 (54) 58 sm

Ermalengd: (24) 28 (32) 36 (40) 43 sm

Garn: Smart

Blágrænt nr. 7345: (6) 7 (8) 9 (10) 11 dokkur Sjá litaspjald á tinna.is

Prjónar:

Hringprjónn 60 eða 80 sm nr. 3 og 3 1⁄2 Sokkaprjónar nr. 3 og 3 1⁄2 Kaðlaprjónn

Prjónfesta:

22 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 3 1⁄2 = 10 sm

Bolur

Fitjið upp á prjóna nr. 3 (152) 162 (172) 184 (192) 204 lykkjur og prjónið stroff, 1 slétt, 1 brugðin, (4) 4 (5) 5 (5) 6 sm. Skiptið yfir á prjóna nr. 3 1⁄2 og prjónið eina umf. slétt, jafnframt sem aukið er í með jöfnu milli bili þar til það eru (166) 178 (190) 202 (214) 226 lykkjur á prjóninum. Prjónið munstur eftir teikningunni þannig: Byrjið í hliðinni, prjónið (20) 23 (26) 29 (32) 35 lykkjur munstur A eftir teikningunni, prjónið síðan munstur B eftir teikningunni (= 44 lykkjur), prjónið (39) 45 (51) 57 (63) 69 lykkjur munstur A eftir teikningunni, (athugið –byrjið munstur A á sama hátt og það endaði fyrir munstur B, þannig að munstur A verði eins báðum megin við munstur B), prjónið munstur B eftir teikningunni (= 44 lykkjur), prjónið (19) 22 (25) 28 (31) 34 lykkjur munstur A eftir teikningunni. Prjónið á þennan hátt þar til bolurinn mælist (22) 25 (28) 31 (34) 37 sm. Fellið af fyrir handveg þannig: Setjið merki utan um 1 lykkju í báðum hliðum með (82) 88 (94) 100 (106) 112 lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Fellið af lykkjurnar í hliðunum og 5 lykkjur báðum megin við þær = 11 lykkjur felldar af í báðum hliðum og (72) 78 (84) 90 (96) 102 lykkjur á hvoru stykki. Leggið til hliðar og prjónið ermar.

Ermar

Fitjið upp á prjóna nr. 3 (40) 42 (44) 46 (48) 50 lykkjur og prjónið stroff eins og á bolnum. Skiptið yfir á prjóna nr. 3 1⁄2, aukið í 10 lykkjur með jöfnu millibili og prjónið munstur A (munstur A er prjónað upp alla ermina). Aukið í 1 lykkju báðum megin við fyrstu lykkju umf. með u.þ.b. 2 sm millibili þar til það eru (60) 68 (74) 78 (82) 88 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin hefur náðu uppge nni lengd og fellið af 11 lykkjur í miðju undir ermi. Prjónið aðra ermi eins.

Laskúrtaka

Setjið ermarnar inn með bolnum og látið affeldu lykkjurnar standast á. Byrjið umf. að aftan þar sem bakstykki og ermi mætast. Prjónið munstur sem fyrr, prjónið 1 umf. yfir allar lykkjurnar og prjónið 2 brugðnar saman í öllum samskeytunum (þar sem bolur og ermi mætast) (= 1 lyk- kja frá ermi og 1 lykkja frá bol prjónaðar saman). Þessi lykkja í samskeytunum er miðjulykkja í laskúrtökunni og er allan tímann prjónuð brugðin. Í næstu umf. er tekið úr þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir að miðjulykkjunni í næsta samskeyti, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið miðjulykkjuna brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtökuna í öllum samskeytunum = 8 lykkjur teknar úr. Prjónið 1 umf. án úrtöku. Takið úr á þennan hátt á öðrum hverjum prjóni þar til það eru (38) 42 (44) 46 (48) 50 lykkjur eftir á framstykkinu (teljið miðjulykkjuna við úrtökurnar ekki með). Prjónið 1 umf. og takið úr 2 lykkjur í hverjum kaðli í miðju að framan = 8 lykkjur teknar úr. Á næsta prjóni er fellt af fyrir hálsmál. Fellið fyrst af (12) 14 (14) 16 (16) 18 lykkjur í miðjunni á framstykkinu. Prjónið nú fram og til baka og fellið af 2 lykkjur í byrjun hvers prjóns við hálsmálið 2 sinnum og síðan 1 lykkju í byrjun hvers prjóns þar til búið er að fella af allar lykkjurnar á framstykkinu (laskúrtakan er alltaf gerð eins og áður).

Hálsmál

Takið upp á prjóna nr. 3, passlega þétt, lykkjur utan um hálsmálið. Prjónið 1 umf. slétt og jafnið lykkjufjöldann í (88) 92 (96) 100 (102) 104 lykkjur. Prjónið stroff í hring (1 slétt, 1 brugðin) u.þ.b. 6 sm. Fellið af.

Frágangur

Lykkið saman undir höndum.

Brjótið kragann tvöfaldann inn á rönguna og saumið niður.

Peysa með laskúrtöku

Lesa meira
Loka

Litríkir sokkar

úr Ragg Hjartagarni

Stærðir (til viðmunar)

25/26(27/28)30/31(32/33)35/36(38/39)40/41(42/43)
3 ára(4 ára)5-6 ára(7-9 ára)10-15 ára(S)(M)(L)

Garn: Ragg sokkagarn

2 (3) 3 (3) 4 (4) 4 (4) dokkur

Prjónar:

Sokkaprjónar nr. 4 ½
2 prjónar nr. 4 ½

Prjónfesta:

8 ½ lykkja á prjóna nr. 4 ½ = 5 sm

Athugið: Þegar byrjað er á öðrum sokk byrjið þá á sama stað í bandinu og byrjað var á fyrri sokknum svo sokkarnir verði eins. Garnið munstrar sig sjálft.

Fitjið upp á 2 prjóna nr. 4 ½ , 28 (28) 32 (32) 36 (36) 40 (40) lykkjur. Skiptið á 4 prjóna og prjónið stroff 2 sléttar, 2 brugðnar 6 (6) 7 (7) 8 (8) 9 (9) sm. Prjónið slétt prjón með 7 (7) 8 (8) 9 (9) 10 (10) lykkjur á hverjum prjóni þar til sokkurinn mælist 12 (13) 14 (15) 16 (16) 17 (17) sm. Prjónið hæl.

Hæll: Setjið lykkjurnar á 1. og 4. prjón saman á 1 prjón = 14 (14) 16 (16) 18 (18) 20 (20) lykkjur á prjóninum. Prjónið slétt prjón fram og til baka yfir þessar lykkjur 5 (5 ½ ) 6 (6 ½ ) 7 (7 ½ ) 8 (8 ½ ) sm. Prjónið síðasta prjón frá röngu. Prjónið þar til 6 (6) 7 (7) 8 (8) 9 (9) lykkjur eru eftir á prjóninum, prjónið 2 snúnar sléttar saman, 1 slétt, snúið við.

Takið 1 lykkju óprjónaða eins og eigi að prjóna hana brugðið, prjónið brugðið þar til 6 (6) 7 (7) 8 (8) 9 (9) lykkjur eru eftir á prjóninum, prjónið 2 brugðnar saman, 1 brugðin, snúið við. Takið 1 lykkju óprjónaða eins og eigi að prjóna hana slétt, prjónið slétt þar til 4 (4) 5 (5) 6 (6) 7 (7) lykkjur eru eftir á prjóninum (prjónað það til 1 lykkja er eftir að fyrri snúning), 2 snúnar slétt saman, 1 slétt, snúið við. Takið 1 lykkjur óprjónaða eins og eigi að prjóna hana brugðið, prjónið brugðið þar til 4 (4) 5 (5) 6 (6) 7 (7) lykkjur eru eftir á prjóninum, 2 brugðnar saman, 1 brugðin, snúið við. Endurtakið úrtökurnar og snúningana þar til allar hliðarlykkjurnar eru farnar í úrtöku = 8 (8) 10 (10) 10 (10) 12 (12) lykkjur á prjóninum.

Prjónið 1 prjón. Takið upp lykkjur meðfram hælnum þannig: Takið upp 10 (11) 12 (12) 13 (14) 15 (16) lykkjur meðfram annarri hliðinni, prjónið lykkjurnar af 2. og 3. prjóni (7 (7) 8 (8) 9 (9) 10 (10) lykkjur á hvorum prjóni). Takið upp 10 (11) 12 (12) 13 (14) 15 (16) lykkjur meðfram hælnum hinum megin. Skiptið nú lykkjunum á prjónana þannig:

1. prjónn: 14 (15) 17 (17) 18 (19) 21 (22) lykkjur
2. prjónn: 7 (7) 8 (8) 9 (9) 10 (10) lykkjur
3. prjónn: 7 (7) 8 (8) 9 (9) 10 (10) lykkjur
4. prjónn: 14 (15) 17 (17) 18 (19) 21 (22) lykkjur

Prjónið nú þannig (prjónið lykkjurnar sem teknar voru upp meðfram hælnum snúnar slétt í 1. umf):

1. prjónn: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum, 2 sléttar saman
2. og 3. prjónn: Slétt
4. prjónn: 2 snúnar sléttar saman, prjónið slétt út prjóninn.

Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umf. þar til 7 (7) 8 (8) 9 (9) 10 (10) lykkjur eru eftir á hverjum prjóni. Haldið áfram með slétt prjón þar til fóturinn mælist 8 ½ (9 ½ ) 10 ½ (11) 12 (13 ½ ) 15 (17) sm, mælt frá hælnum þar sem lykkjurnar voru teknar upp.

Tá:

1. prjónn: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 slétt saman, 1 slétt.
2. prjónn: 1 slétt, 1 tekin óprjónuð, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. prjónið slétt út prjóninn.
3. prjónn: eins og 1. prjónn
4. prjónn: eins og 2. prjónn.

Endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umf. þar til það eru 12 (12) 12 (12) 12 (16) 16 (16) lykkjur eftir í umf. Prjónið 1 umf.
Setjið lykkjurnar af 1. og 4. prjóni saman á 1 prjón og setjið lykkjurnar af 2. og 3. prjóni saman á 1 prjón. Lykkið saman frá réttunni eða snúið sokknum við og fellið af með því að prjóna saman 2 lykkjur, 1 frá hvorum prjóni, og fella af um leið.
Prjónið annan sokk eins.

Leggið sokkana á milli rakra handklæða og látið þorna.

Lesa meira
Loka

Lambhúshetta

Garn: Smart (100% forþvegin ull, u.þ.b. 100 m. í 50 gr.) Aðrir garnmöguleikar: Merinoull, Klompelompe Merinoull, Alpakka Ull. Stærðir: (2) 3 (4-5) ára. Sægrænt: 1 dokka allar str. Blátt : 1 dokka allar str. Rautt: 1 dokka allar str. Prjónar: 40 sm. hringprjónn nr. 2,5. 50 sm hringprjónn nr. 3,5. Prjónfesta: 16 lykkjur í klukkuprjóni á prjóna nr. 3,5 eru 10 sm. Ef þið prjónið fastar en uppgefin prjónfesta, notið þá grófari prjóna. Ef þið prjónið lausar en uppgefin prjónfesta, notið þá fínni prjóna. Klukkuprjón: 1. prjónn (ranga): 1 slétt (= kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju, * 1 slétt, sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja). 2. Prjónn (rétta): 1 slétt (kantlykkja), prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman*. Sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna, prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt(= kantlykkja). 3. prjónn (ranga): 1 slétt (kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna. * Prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða eins og brugðna *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja). Endurtakið alltaf 2. og 3. prjón. Tveir prjónar mynda eina umferð (lykkjur sem hægt er að telja í klukkuprjóni). Hettan: Fitjið upp með bláu á hringprjón nr. 2,5 (78) 86 (94) lykkjur. Prjónið 1 sl. 1 br. í hring 2,5 sm. Slítið frá. Setjið (4) 5 (5) fyrstu og síðustu (4) 5 (5) lykkjurnar á prjónanælu = (70) 76 (84) lykkjur. Skiptið yfir í sægrænt og hringprjón nr. 3,5. Byrjið að prjóna frá röngu. Fitjið upp eina lykkju á öðrum enda prjónsins þannig að önnur lykkjan er slétt á réttunni í báðum hliðum = (71) 77 (85) lykkjur. Prjónið fyrstu og síðustu lykkjuna slétta á réttu og röngu (=kantlykkjur). Prjónið klukkuprjón fram og til baka röndótt þannig: (8) 10 (12) prjónar sægrænt, 8 prjónar rautt, 4 prjónar sægrænt, 8 prjónar blátt, 6 prjónar rautt, 10 prjónar sægrænt, 6 prjónar blátt, 8 prjónar rautt, 4 prjónar sægrænt, 8 prjónar blátt, (8) 10 (12) prjónar sægrænt. Þetta eru samtals (39) 41 (43) umferðir. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum. Saumið hettuna saman og aftan þannig að sléttu lykkjurnar standist á. Gangið mjög vel frá öllum endum því að garnið er mjög mjúkt. Kragi: Byrjið í miðju að aftan og prjónið upp með sægrænu á hringprjón nr. 2,5 eina lykkju við hvern hnút meðfram neðri brún hettunnar = (39) 41 (43) lykkjur vinstra megin. Prjónið lykkjurnar (8) 10 (10) upp á prjóninn og prjónið upp (39) 41 (43) lykkjur hægra megin = (86) 92 (96) lykkjur. Prjónið 1 sl. 1 br. í hring 2,5 sm. Skiptið yfir í blátt og hringprjón nr. 3,5. Byrjið að prjóna frá röngu og prjónið klukkuprjón fram og til baka. Prjónið fyrstu og síðustu lykkjuna slétta á réttu og brugðna á röngu (=kantlykkjur). ATH. Prjónið lykkjurnar í klukkuprjóninu eins og þær koma úr slétta og brugðna prjóninu. Prjónið röndótt þannig: 6 prjónar blátt, 4 prjónar rautt, 8 prjónar sægrænt, 6 prjónar blátt, 4 prjónar rautt, (10) 12 (14) prjónar sægrænt. Fellið af mjög laust. Lykkjurnar í affellingunni mega vera allt að 1 sm. langar. Frágangur: Gangið sérstaklega vel frá öllum endum því að garnið er mjög mjúkt. Saumið kragann saman að aftan. Búið til rauðan og bláan skúf. Heklið 2 bönd með sægrænu um 8 og 10 sm. löng, festið skúf í böndin og heklið keðjulykkjur til baka. Festið böndin í toppinn á lambhúshettunni. Þvoið í þvottavél á ullarprógrammi samkvæmt þvottaleiðbeiningum á garni. Lítil vinding. Gamla góða lambhúshettan. Smelltu hér til að hala uppskriftinni niður.
Lesa meira
Loka

Peysa

úr Smart garni

Stærðir:

(2) 4 (6) 8 (10) ára

Mál á peysu:

Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm Sídd u.þ.b.: (37) 41 (45) 49 (52) sm

Garn: Smart

Blátt nr. 5936: (6) 6 (7) 8 (9) dokkur Sjá litaspjald á tinna.is

Prjónar/heklunál/fylgihlutir:

Hringprjónn 60 sm nr. 3 og 4 Sokkaprjónar nr. 3 og 4 Heklunál nr. 3 Kaðlaprjónn 3 tölur

Prjónfesta:

21 lykkja á prjóna nr. 4 = 10 sm

Bolur

Fitjið upp á prjóna nr. 3 (152) 160 (172) 180 (192) lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er tekið úr með jöfnu millibili þar til það eru (134) 142 (152) 160 (168) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón. Prjónið þar til bolurinn mælist (22) 25 (28) 31 (34) sm. Skiptið fyrir handveg með því að fella af 2 lykkjur í byrjun umf. og 2 lykkjur í miðju umf. = (65) 69 (74) 78 (82) lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Prjónið hvort stykki fyrir sig.

Bakstykki

Fellið af fyrir handveg í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (2,1,1,1) 2,2,1,1 (3,2,1,1) 3,2,1,1,1 (3,2,2,1,1) lykkjur = (55) 57 (60) 62 (64) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til handvegurinn mælist (14) 15 (16) 17 (17) sm. Setjið (23) 25 (26) 28 (28) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun hvers prjóns frá handveginum (5,5,6) 5,5,6 (5,6,6) 5,6,6 (6,6,6) lykkjur. Prjónið hina hliðina eins.

Framstykki

Prjónað eins og bakstykkið þar til handvegurinn mælist (4) 5 (51⁄2) 6 (6) sm. Setjið (5) 5 (6) 6 (6) lykkjur í miðjunni á prjónanælu fyrir klauf að framan og prjónið hvora hlið fyrir sig. Prjónið þar til framstykkið er (5) 5 (51⁄2) 6 (6) sm styttra en bakstykkið. Fellið af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið (3,2,2,1,1) 3,2,2,1,1,1 (3,2,2,1,1,1) 4,3,2,1,1 (4,3,2,1,1) lykkjur. Fellið af á öxl á sama stað og á bakstykkinu.

Ermar

Fitjið upp á prjóna nr. 3 (40) 44 (44) 48 (48) lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 41⁄2 (41⁄2) sm. Í síðustu umf. er aukið í með jöfnu millibili þar til það eru (44) 46 (48) 50 (52) lykkjur á prjóninum. Skiptið y r á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón og munstur eftir teikningunni y r lykkjurnar 26 í miðjunni á erminni. Jafnframt er aukið í 2 lykkjur í miðju undir ermi þegar ermin mælist (6) 6 (5) 6 (8) sm. Endurtakið útaukninguna með (2) 2 (21⁄2) 3 (3) sm millibili alls (8) 9 (9) 10 (10) sinnum = (60) 64 (66) 70 (72) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (23) 27 (31) 35 (39) sm. Fellið af 2 lykkjur í miðju undir ermi og prjónið ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermak- úpu í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (3,2,1,1,1,1,1,2,2,2) 3,2,1,1,1,1,1,1,2,2,3 (3,2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4 (3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4) lykkjur. Fellið af lykkjurnar (26) 26 (26) 26 (28) sem eftir eru í einu lagi. Prjónið aðra ermi eins.

Frágangur

Saumið axlarsauminn. Takið upp á prjóna nr. 3 meðfram hálsmálinu (lykkjurnar á prjónanælunni meðtaldar, aukið í 1 lykkju á u.þ.b. 8. hverri lykkju y r lykkjurnar á prjónanælunni) alls u.þ.b. (88) 92 (96) 100 (100) lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, á réttunni á að vera 1 kantlykkja og 2 sléttar í báðum hliðum (að framan). Prjónið þar til strof ð mælist (12) 12 (13) 13 (14) sm. Fellið af.

Listar í klauf að framan

Prjónið á prjóna nr. 3 lykkjurnar á prjónanælunni í klau nni í miðju að framan. Fitjið upp 1 nýja lykkju við fremra stykkið (vinstra megin) og á stærðum 2ja og 4ra ára er aukið í 1 lykkju í miðjunni = 7 lykkjur. Prjónið stroff (1 slétt, 1 brugðin). Frá réttunni á að vera 1 slétt í báðum hliðum. Takið 1. lykkju við opið óprjónaða svo kanturinn verði fallegur. Prjónið þar til listinn nær (aðeins strekkt) að miðj- unni á kraganum. Fellið af. Takið upp lykkjur neðst í klau nni fyrir aftan listann og prjónið annan lista eins sem nær (aðeins strekkt) að miðjunni á kraganum. Fellið af. Saumið listana við framstykkin. Brjótið kragann tvöfalt inn á rönguna og saumið niður. Heklið 3 hneslur með tvöföldu garni og saumið á vinstri hliðina á klau nni. Saumið tölur í á móti. Saumið ermarnar í.Peysa úr Smart garni
Lesa meira
Loka

Skokkur

úr Smart

Stærðir:

(2) 4 (6) 8 (10) ára.

Mál á skokki:

Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm.

Sídd: (38) 42 (46) 50 (54) sm.

Ermalengd: (24) 27 (30) 33 (36) sm.

Garn: Smart.

Ljósgrænt nr. 9012: (5) 6 (7) 8 (9) dokkur. Grænt nr. 8764: 1 dokka allar stærðir.

Fylgihlutir:

1 tala. Prjónanælur. Hjálparprjónn.

Prjónar:

Sokkaprjónar og hringprjónn (60 sm) nr. 4.

Prjónfesta:

20 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 4 = 10 sm.

Bolur:

Fitjið upp (138) 146 (156) 164 (174) lykkjur með ljósgrænu á hringprjón nr. 4 og prjónið garðaprjón í hring (1 umf. br., 1 umf. sl.) (5) 5 (5) 6 (6) sm.

Setjið merki í hvora hlið með (64) 68 (72) 76 (80) lykkjur á bakstykkinu og (74) 78 (84) 88 (94) lykkjur á framstykkinu. Setjið einnig merki sitt hvorum megin við (22) 24 (26) 28 (30) lykkjur á miðju framstykki. Prjónið slétt í hring en prjónið miðlykkjurnar (22) 24 (26) 28 (30) á framstykkinu áfram í garðaprjóni. Prjónið þar til bolurinn mælist (9) 9 (10) 10 (10) sm. Prjónið nú tveimur lykkjum færri í garðaprjóni á miðju framstykkinu = (20) 22 (24) 26 (28) lykkjur í garðaprjóni á miðju framstykki. Prjónið þar til bolurinn mælist (14) 14 (15) 15 (15) sm. Prjónið tveimur lykkjum færri í garðaprjóni á miðju framstykkinu. Fækkið garðaprjónslykkjunum um tvær með (4) 4 (5) 5 (5) sm. millibili þar til (10) 10 (12) 12 (14) garðaprjónslykkjur eru eftir. Athugið: Fellið af fyrir handvegi þegar bolurinn mælist (25) 28 (31) 35 (38) sm. þannig: Fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið (2 lykkjur sitt hvorum megin við hliðarmerkið) = (60) 64 (68) 72 (76) lykkjur á bakstykki og (70) 74 (80) 84 (90) lykkjur á framstykki. Prjónið hvort stykki fyrir sig.

Bakstykki:

Prjónið sl. á réttu, br. á röngu og fellið af í byrjun hvers prjóns við handveg (2,1,1,1) 2,1,1,1,1 (2,1,1,1,1) 2,1,1,1,1 (2,1,1,1,1,1) lykkju = (50) 52 (56) 60 (62) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til 2 sm. vantar uppá fulla sídd. Setjið (18) 20 (22) 22 (24) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í byrjun prjóns við hálsmálið = (15) 15 (16) 18 (18) lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til bakstykkið hefur náð fullri sídd. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina hliðina á sama hátt en gagnstætt.

Framstykki:

Prjónið og fellið af fyrir handvegi eins og á bakstykki og haldið jafnframt áfram að prjóna garðaprjón í miðju sem fyrr = (60) 62 (68) 72 (76) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til (6) 6 (7) 7 (8) sm. vantar uppá fulla sídd.

Gerið tvær fellingar í miðju að framan þannig: Prjónið þar til (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur eru eftir að garðaprjónslykkjunum, setjið (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur á hjálparprjón, leggið hjálparprjóninn með réttuna fram, fyrir framan fyrstu (5) 5 (6) 6 (7) garðaprjónslykkjunar, rennið hjálparprjónslykkjunum að hinum enda prjónsins og prjónið 1 lykkju af hvorum prjón saman (1. felling). Setjið síðustu (5) 5 (6) 6 (7) garðaprjónslykkjurnar á hjálparprjón, leggið prjóninn með réttuna fram, fyrir aftan næstu (5) 5 (6) 6 (7) lykkjur, ha ð vinstrihandarprjóninn fyrir framan. Rennið hjálparprjónslykkjunum að hinum enda prjónsins og prjónið 1 lykkju af hvorum prjóni saman (2. felling). Prjónið út umferðina. Prjónið br. til baka yfir allar lykkjurnar. Prjónið 2 lykkjur í miðjunni br. saman = (49) 51 (55) 59 (61) lykkja á prjóninum.

Setjið (5) 7 (9) 9 (11) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af í byrjun prjóns við hálsmálið 3,2,1,1 lykkju = (15) 15 (16) 18 (18) lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til stykkið hefur náð fullri sídd. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina öxlina á sama hátt en gagnstætt.

Ermar:

Fitjið upp (40) 42 (44) 46 (48) lykkjur með grænu á sokkaprjóna nr. 4 og prjónið stroff í hring (1 umf. br., 1 umf. sl.) samtals (4) 4 (4) 5 (5) sm. Skiptið yfir í ljósgrænt og prjónið sl. Prjónið þar til ermin mælist (5) 5 (5) 6 (6) sm. Aukið út 1 lykkju sitt hvorum megin við 2 lykkjur undir miðri erminni. Endurtakið útaukninguna á 6. hverri umferð þar til (50) 54 (58) 62 (66) lykkjur eru á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (24) 27 (30) 33 (36) sm. Fellið af 8 lykkjur undir miðri erminni. Prjónið sl. á réttu, br. á röngu fram og til baka.

Fellið af í byrjun hvers prjóns í hvorri hlið (2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 2,2,1,1,1,1,1,1,2,3,3 (2,2,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4) 2,2,2,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4, (2,2,2,1,1,1,1,1,1,1,1,2,3,4) lykkjur = (10) 10 (10) 10 (12) lykkjur eftir á prjóninum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið aðra ermi á sama hátt.

Frágangur:

Saumið eða lykkið axlir saman. Saumið ermar í handveg.

Hálslíning:

Prjónið upp í kringum hálsmálið (takið lykkjurnar af prjónanælunum með) með grænu á prjóna nr. 4. Prjónið 1 umf. br., 1 umf. sl. þar til 5 garðar hafa myndast (= 10 umf.) Fellið af með br. lykkjum. Festið stóra tölu efst á mitt framstykkið.

Lesa meira
Loka

Þæfð diskamotta eða stólsessa

Þæfð diskamotta eða stólsessa

Mál, fyrir þæfingu:

42x54 sm

Mál, eftir þæfingu:

32x44 cm

Garn: Fritidsgarn

Dökkfjólublátt nr. 5229: 2 dokkur Fjólublátt nr. 5226: 1 dokka Ljósfjólublátt nr. 5024: 1 dokka Vínrautt nr. 4529: 1 dokka Bleikt nr. 4513: 1 dokka Dökkbleikt nr. 4627: 1 dokka Sjá litaspjald á tinna.is

Prjónar:

Prjónar nr. 5 1⁄2

Prjónfesta:

14 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 5 1⁄2 = 10 sm Fitjið upp 36 lykkjur með dökkfjólubláu og prjónið 18 garða, A. Skiptið í fjólublátt og prjónið 6 garða, B. Klippið frá en geymið lykkjurnar á prjóninum. Snúið stykkinu (og notið nýjan prjón) og takið upp lykkjur með fjólubláu meðfram vinstri hlið á stykkinu, 1 lykkja í hvern garð = 24 lykkjur, prjónið 6 garða, C. Klippið frá en geymið lykkjurnar á prjóninum. Snúið stykkinu, takið upp lykkjur með dökkbleiku meðfram kantinum neðst (upp tunarkantinum), 1 lykkja í hvern garð/lykkju = 42 lykkjur, prjónið 6 garða, D. Haldið áfram eins meðfram síðustu hliðinni og síðan í hring eins og sýnt er á teikningunni (prjónað eftir stafrófsröð). Þæfið diskamottuna. Þæfð diskamótta eða stólsessa
Lesa meira
Loka

Teppi og púðar

úr Alfa

Teppi

Stærð

U.þ.b. 125 x 175 sm.

Garn: Alfa (85% ull, 15% mohair)

Kremað nr. 1012: 9 dokkur. Grátt nr. 1042: 7 dokkur. Grátt nr. 1053: 7 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 9 dokkur.

Prjónar

Nr. 7. Heklunál nr. 7.

Prjónfesta

13 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 7 = 10 sm.

Prjónið ferninga eftir teikningu

Ferningur A (kremað nr. 1012): 10 stk. Ferningur B (grátt nr. 1042): 9 stk. Ferningur C (koksgrátt nr. 1088): 8 stk. Ferningur D (grátt nr. 1053): 8 stk. Saumið saman ferningana eins og teikningin sýnir. Heklið 1 umf. fastapinna í kringum teppið. Heklið því næst einn stuðul í hvern fastapanna en heklið aðeins fleiri stuðla í hornin þannig að kanturinn liggi vel.

Púðar

Stærð

U.þ.b. 50 x 50 sm.

Garn í báða púðana

Kremað nr. 1012: 2 dokkur. Grátt nr. 1042: 8 dokkur. Grátt nr. 1053: 2 dokkur. Koksgrátt nr. 1088: 2 dokkur.

Einlitur púði með hjörtum

Fitjið upp 66 lykkjur með gráu nr. 1042 og prjónið ferning B tvisvar sinnum á hæð og breidd. Fellið af. Prjónið annað stykki á sama hátt og saumið saman.

Fjórlitur púði

Prjónið tvö stykki af hverjum ferningi (A, B, C og D). Saumið saman eins og ljósmyndin sýnir. Teppi og púðar
Lesa meira
Tinna Heildverslun
Nýbýlavegi 30
200 Kópavogur

Sími: 565 4610
fax: 565 4611
Kt. 420165-0139
VSK nr. 45958
tinna@tinna.is
Flýtileiðir
  • Um okkur
  • Hafa samband
  • Verslanir
  • Prjónaklúbburinn
  • Skilmálar
Facebook Email
2018 TINNA Nýbýlavegi 30, 200 Kópavogi - tinna@tinna.is
Hönnun: Veftorg

Karfa

loka
loka
Start typing to see products you are looking for.
  • Heim
  • Fyrirtækið
    • Um Tinnu
    • Endursöluaðilar
    • Tilkynningar
    • Prjónaklúbburinn
    • Hafa samband
    • Leiðbeiningar – Þæfing
  • Vörur
    • Garn
    • Prjónar og fylgihlutir
      • Prym
      • Sandnes
      • Knitpro
        • Fylgihlutir
    • Stakar uppskriftir til sölu
    • Gjafabréf
  • Prjónablöð
  • Ókeypis uppskriftir
  • Tilboð
  • Innskrá / Nýskrá

Innskráning

loka

Týndir þú lykilorðinu?
Ekki með aðgang? Stofna aðgang
Scroll To Top

GJAFAKORT. Gefðu árs áskrift að TINNU prjónablaði! 20% afsláttur! Smelltu hér...