Leiðbeiningar – Þæfing
- Þvoið við 40°c hita í þvottavél á hraðkerfi fyrir venjulegan þvott.
- Athugið að útkoman getur verið mismunandi eftir vélum.
- Þæfingin verður þéttari eftir því sem meiri sápa er notuð og vatnið heitara.
- Ef þæfingin er ekki nægileg eftir fyrsta þvott má þreifa sig áfram og endurtaka þvottinn á t.d. 60c°.
- Notið enzymfrítt (biofrítt) þvottaefni eða grænsápu.
- Gott er að hafa fleiri flíkur í vélinni, t.d. einar eða tvennar vinnubuxur.
- Strekkið og formið stykkið sem verið er að þæfa eftir létta þeytivindu og leggið til þerris.
- Athugið! Notið venjulegt ullarprógram í þvottavél eða handþvott 30-40° ef stykkið er þvegið aftur seinna.