Isla peysa – uppskrift og garn
SandnesgarnLýsing
Isla er aðsniðin peysa sem er prjónuð ofan frá og niður úr garninu Paljett. Hún er prjónuð með sléttprjóni, laskaútaukningum og styttum umferðum sem móta fallegt hálsmál.
Einföld og glæsileg peysa i, sem hentar jafnt hversdags sem og við hátíðleg tilefni.
Uppskriftin er á norsku. Prentaður uppskriftabæklingur fylgir frítt með garninu og hann inniheldur QR kóða þar sem hægt er að skoða uppskriftina rafrænt. Hver einstök prjónauppskrift fylgir frítt með þegar keypt er garn í flíkina í vefverslun Tinnu.
Nánari upplýsingar
Peysan er prjónuð ofan frá og niður með sléttprjóni og raglanúrtökum. Fyrst eru prjónaðar styttar umferðir til að móta dýpra hálsmál, samhliða því sem aukið er út fyrir raglanúrtökum. Að því loknu er verkinu skipt niður í ermar, framstykki og bakstykki, og hver hluti prjónaður til fulls fyrir sig.
Fyrirsætan er 179 cm á hæð og klæðist stærð M (brún peysa) og S (blá peysa).
Ráðlögð prjónastærð: Prjónar nr. 3
Prjónfesta: 23 lykkjur = 10 cm
Stærðartafla
| XXS | XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | 5XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Yfirvídd (brjóstmál) | 72 cm | 77 cm | 82 cm | 87 cm | 92 cm | 101 cm | 113 cm | 122 cm | 134 cm | 144 cm |
| Heildarlengd | 48 cm | 50 cm | 52 cm | 54 cm | 56 cm | 58 cm | 61 cm | 66 cm | 70 cm | 73 cm |
| Ermalengd | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm | 48 cm |
Stærðirnar eru til viðmiðunar og mælt er með því að taka mál af þeim sem á að nota flíkina. Uppgefin mál miðast við tilgreinda prjónfestu.
Garnmagn
| XXS | XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | 5XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Paljett | 5 | 6 | 6 | 7 | 7 | 8 | 9 | 9 | 10 | 11 |
Fjöldi dokka. Garnmagnið miðast við uppgefin mál. Ef flíkin á að vera lengri gæti þurft meira garn.
