Rory toppur – uppskrift og garn
SandnesgarnLýsing
Rory Tee er töff og ósamhverfur toppur sem er prjónaður ofan frá og niður úr PALJETT. Hann er aðsniðinn, með aðra öxlina bera og skáhallandi hálsmáli sem gefur flíkinni sérstakt og spennandi yfirbragð.
Glitrandi toppur sem hentar fullkomlega fyrir hátíðleg tilefni !
Uppskriftin er á norsku. Prentaður uppskriftabæklingur fylgir frítt með garninu og hann inniheldur QR kóða þar sem hægt er að skoða uppskriftina rafrænt. Hver einstök prjónauppskrift fylgir frítt með þegar keypt er garn í flíkina í vefverslun Tinnu.
Nánari upplýsingar
Bolurinn er prjónaður ofan frá og niður. Hann er með ósamhverfu sniði, annarri öxlinni opinni og skáhallandi hálsmáli sem nær niður fyrir aðra ermina.
Fyrst eru fitjaðar upp lykkjur fyrir aðra öxlina eingöngu og prjónað fram og til baka. Samhliða því eru gerðar útaukningar fyrir raglan og hálsmálið mótað.
Þegar útaukningunum er lokið er verkið tengt saman og því skipt niður í ermi, framstykki og bakstykki. Hver hluti er síðan prjónaður í hring þar til réttri lengd er náð.
Að lokum er prjónaður mjór faldur meðfram hálsmálinu sem teygja er dregin í gegnum, þannig að bolurinn haldist vel á sínum stað.
Athugið: Þetta er aðsniðin flík. Mælt er með því að taka mál rétt fyrir neðan brjóstin og velja stærð út frá því máli.
Fyrirsætan er 179 cm á hæð og klæðist stærð M.
Ráðlagðar prjónastærðir: Prjónar nr. 2,5 og nr. 3.
Prjónfesta: 23 lykkjur = 10 cm.
Fylgihlutir: Mjó teygja í hæfilegri lengd.
Stærðartafla
| XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Yfirvídd | 69 cm | 74 cm | 79 cm | 87 cm | 96 cm | 107 cm | 117 cm |
| Heildarlengd | 48 cm | 50 cm | 52 cm | 55 cm | 57 cm | 60 cm | 63 cm |
| Ermalengd | 3 cm | 3 cm | 3 cm | 3 cm | 4 cm | 4 cm | 4 cm |
Stærðirnar eru til viðmiðunar og mælt er með því að taka mál af þeim sem á að nota flíkina. Uppgefin mál miðast við tilgreinda prjónfestu.
Garnmagn
| XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Paljett | 3 | 3 | 4 | 4 | 4 | 5 | 5 |
Fjöldi dokka. Garnmagnið miðast við uppgefin mál. Ef flíkin á að vera lengri gæti þurft meira garn.
