Vea pils – uppskrift og garn
SandnesgarnLýsing
Glæsilegt pils sem hentar einstaklega vel við hátíðleg tilefni eða þegar þú vilt bæta örlitlum glitrandi blæ við hversdagsklæðnaðinn.
Uppskriftin er á norsku. Prentaður uppskriftabæklingur fylgir frítt með garninu og hann inniheldur QR kóða þar sem hægt er að skoða uppskriftina rafrænt. Hver einstök prjónauppskrift fylgir frítt með þegar keypt er garn í flíkina í vefverslun Tinnu.
Nánari upplýsingar
Pilsið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónuð tvöföld rás í mittinu fyrir teygju, síðan er haldið áfram að prjóna í hring með sléttprjóni og úrtökum sem skapa fallegt snið sem hentar mörgum.
Uppskriftin inniheldur bæði stutta og síða útgáfu af pilsinu.
Fyrirsætan er 179 cm á hæð og klæðist stærð M.
Ráðlagðar prjónastærðir: Prjónar nr. 2,5 og 3.
Prjónfesta: 23 lykkjur = 10 cm.
Aukahlutir: 3 cm breið teygja í hæfilegri lengd.
Stærðartafla
| XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Mittismál | 68 cm | 76 cm | 81 cm | 89 cm | 97 cm | 104 cm | 115 cm | 125 cm |
| Heildarlengd | 100 cm | 100 cm | 100 cm | 100 cm | 100 cm | 100 cm | 100 cm | 100 cm |
| Vídd neðri brún | 146 cm | 154 cm | 159 cm | 172 cm | 180 cm | 193 cm | 209 cm | 219 cm |
Stærðirnar eru til viðmiðunar og mælt er með því að taka mál af þeim sem á að nota flíkina. Uppgefin mál miðast við tilgreinda prjónfestu.
Garnmagn
Stutt pils
| XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Paljett | 4 | 4 | 5 | 5 | 6 | 7 | 7 | 8 |
Sítt pils
| XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Paljett | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 16 | 17 |
Fjöldi dokka. Garnmagnið miðast við uppgefin mál. Ef flíkin á að vera lengri gæti þurft meira garn.
